Tóta

miðvikudagur, september 26, 2007

Núna er ég loksins komin með netið svo það er um að gera að fagna því með að blogga...
Ég er nú komin á fullt í skólanum og meira en nóg að gera. Námið er rosalega spennandi en líka mjög krefjandi. Það er erfitt að venjast því að lesa og lesa og skilja samt kannski ekki helminginn af því sem maður er að lesa!! Ég fékk heim með mér fullan kassa af beinum sem ég á að læra nöfnin á, þar með talið hvert einasta horn og hlið og sprungu í því. Svo höfum við aðgang að herbergi sem er fullt af kerum með alvöru líkamspörtum sem við megum taka upp úr kerunum og skoða...ég veit þetta hljómar ógeðslega en þetta er stórmerkilegt og svo flott!!
Ég er komin í ”læsegruppe” með þremur rosalega fínum stelpum svo það er frábært. Það er gott að lesa með einhverjum og hjálpast að. Við höfum það líka mjög skemmtilegt saman. Við bauð þeim t.d. í pizzu um daginn sem var mjög huggulegt, svo við erum að verða fínustu vinkonur.
Félagslífið í skólanum er mjög gott. ég fór á pöbbarölt um daginn þar sem var farið á milli 8 mismunandi pöbba og diskóteka og var boðið upp á einn til tvo drykki á hverjum stað...þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig ástandi maður var í eftir það. Svo er ég búin að fara á mjög skemmtilega fredagsbari. Þeir byrja á hverjum föstudegi klukkan 3...Mér finnst skemmtileg tilbreyting að byrja djammið svona snemma! Svo erum við í bekknum mínum dugleg að gera eitthvað saman eins og að borða hádegismat saman og fara í sund og svona.
Ég er flutt ásamt Lubbu systur og Björgu í rosalega krúttlega og flotta íbúð á frábærum stað. Ég þarf reyndar að hjóla upp langa brekku á leiðinni í skólann svo ég mæti kósveitt á hverjum morgni. Við erum búnar að koma okkur vel fyrir og höfum það allveg rosalega huggulegt. Við erum alltaf að baka og elda saman, sem er voða gaman. Ég er með allveg risastórt herbergi, eiginlega of stórt! Ég fór með Geir og skvísunni hans í Ikea um daginn til að kaupa mér fataskáp, svo núna lítur þetta bara ágætlega út. Stór plús við íbúðina er að það er baðkar: ) Ég verð að fara að byrja að taka myndir aftur...væri gaman að geta sýnt ykkur heimilið okkar...
Magga kom í helgarferð til mín um daginn og það var allgjör unaður. Við fórum út að borða og röltum um bæinn og spjölluðum um lífið og tilveruna. Við elduðum líka góðan mat, drukkum hvítvín og spiluðum. Það var svo ótrúlega gott að fá hana í heimsókn. Það er líka gott að vera í sama landi og hún og geta þess vegna hringt hvenær sem mig langar.
Ég er líka byrjuð í afró! Það er allveg ótrúlega gaman. Við Sara vinkona mín heilluðumst svo af því þegar við horfðum á hópinn hennar Laufeyju dansa í bænum um daginn svo við skelltum okkur í prufutíma...og það ar svo gaman að við ákváðum að gera þetta að föstum lið. Þá verð ég líka búin að læra smá að dansa áður en ég fer til Afríku, hvernær sem nú það verður.

Það er mjög skemmtileg helgi framundan hjá mér því Magga og Sigríður eru að koma í heimsókn. Við erum samt svo sem ekki búnar að plana neitt svakalegt en ég hlakka svo mikið til. Ég ætlaði að halda voðalegt partí en var bara alltof sein að bjóða fólki svo það voru mjög margir uppteknir...danir eru alltof skipulagðir. Það er þegar búið að bjóða mér í partí 19. oktober og 3.nóvember!! Svo afmælispartíið mitt verður bara lítið og huggulegt í staðinn...það hljómar líka mjög vel.

Góða helgi öllsömul...

11 Ummæli:

  • Þann 27 september, 2007 11:56 , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Þú ert mjög duglegur bloggari og ég er þvílíkt ánægð með það. Þá veit ég alla veganna hvað er að gerast hjá þér þó þú sért svona langt í burtu. Hver veit nema ég sendi þér kveðju á afmælisdaginn:)

     
  • Þann 28 september, 2007 10:00 , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Til hamingju með afmælið elsku dúllan mín! Ég hringi í þig seinna í dag. Eigðu yndislegan dag. Knúsar í klessu frá stærstustu systur.

     
  • Þann 28 september, 2007 12:42 , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Elsku Þórný.

    Til hamingju með afmælið.
    Gaman að sjá að allt gengur vel. Skypið minnti mig á daginn :o)
    Allt gott að frétta frá Akureyri. Í dag er bara nokkuð hlýtt hér og ég vona að þetta verði svona áfram.

    Kossar til ykkar systra frá gamla settinu í Aðalstræti

     
  • Þann 28 september, 2007 15:40 , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Til hamingju með daginn aftur Þórný mín. Vonandi geriru eitthvað gaman til að halda upp á daginn.

     
  • Þann 28 september, 2007 16:17 , Blogger Addi sagði...

    til hamingju með afmælið. það er greinilega allt að ganga vel hjá þér. það er gott.
    ég er eitthvað byrjaður að skrifa aftur ef þú vilt fylgjast með frá östreich. ég bið að heils möggu og sigríði.

     
  • Þann 28 september, 2007 17:01 , Blogger Laufey sagði...

    Til hamingju dúllan mín. Takk fyrir yndislegar kökur.. er mjög afvelta.
    Knús frá miðjusystur úr næsta herbergi.

     
  • Þann 30 september, 2007 02:43 , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Komdu sæl kolleginn minn kæri.

    Ég var nú búinn að óska þér til hamingju með afmælið, en sjaldan er of góð vísa of oft kveðin (eða e-ð svoleiðis) þannig að ég geri það hérmeð aftur:

    Hjartanlega til hamingju!

    Eftir gott spjall okkar og lesningu á blogginu þínu þá veit ég bara nokkuð vel hvað að gerast hjá þér (kanski jafnvel betur en hvað er að gerast hjá mér; það er rosalegt þegar slúður er orðið international...;)) og vona bara að þér gangi sem allra best við að halda fullri athygli í dönskum fyrirlestrum um líkamsparta!

    Nú er þetta komment orðið allt of langt og best að fara að hætta þessu bulli... (Þar hefurðu ástæðuna fyrir því af hverju ég kommenta aldrei!) en ég fylgist með þér...

    Bless í bili

     
  • Þann 30 september, 2007 16:21 , Blogger Tóta sagði...

    Takk æðislega fyrir allar afmæliskveðjurnar :) Bæði hér og líka smsin...

    Ég var að fygja Möggu og Sigríði á lestarstöðina. Það var leiðnlegt að kveðja þær því það var svo gaman að hafa þær. Ég átti einn skemtilegasta afmælisdag sem ég hef átt lengi!

    En ég þarf víst að fara að lesa um líkamspartana svo ég geti haldið athyglinni í fyrirlestrinum á morgun.
    Ég verð eiginlega að gefa Júlíusi ekstra kredit fyrir sitt komment ;)

    Aldrei að vita nema ég skelli nokkrum myndum inn frá helginni í kvöld... ef ég verð dugleg að læra þ.e.a.s.

    Knús

     
  • Þann 30 september, 2007 22:00 , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Hæ frænka. Gaman að heyra hvað þér líkar vel í Arhus,sérstaklega af því að ég veit að þú fórst fremur tregafull frá Köben. Þsð var æðislegt að hitta ykkur systur smástund í Arhus.Bið innilega að heilsa nöfnu og aftur til hamingju m. afmælið sem var.
    Auntie Lubba

     
  • Þann 02 október, 2007 01:16 , Blogger Unknown sagði...

    hæ elskan! við ásta erum að koma til köben og verðum 24-29. október! mikið væri gaman ef þú gætir komið og hitt okkur!
    innilega til hamingju með afmælisdaginn þinn, trúi ekki öðru en að hann hafi verið góður.
    bestu óskir, kristín

     
  • Þann 16 október, 2007 15:48 , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Hæ sæta, til hamingju með afmælið um daginn!

    Þín var saknað á föstudaginn, þá var stjórnarhittingur heima hjá Júlíusi. Allir nema þú, reyndum að hringja í þig en allt fyrir ekki!

    Erum strax farin að ræða hitting um jólin! Ást og kossar og kveðjur frá mér og Ottó :*

     

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim