Gleði
Ég þarf að fá útras fyrir gleði mína:)
Ég er vöknuð aftur til lífsins eftir að hafa verið í hálfgerðu dái í 4 mánuði
Allt er svo fallegt og yndislegt og það er svo gaman að vera til
Það er ekkert framundan hja mér næstu mánuði sem ég hlakka ekki til!
Ég er með strengi í kinnunum eftir að brosa og í fótunum eftir að dansa frá mér allt vit
Heilinn á mér er ekki lengur að springa yfir álagi
Ég ligg upp í rúmi og get ekki sofnað...og núna er það ekki út af stressu heldur gleði og spenningi
Ég er ekki lengur í kapphlaupi við tímann...hann bara líður og ég flýt með
Ég finn á mér að þetta verður yndislegt sumar, það er það nú þegar og svo margt skemmtilegt framundan
Ég er að fara til Möggu minnar á mánudagin og við ætlum að njóta hvers augnarbliks
Hróarskelda nálgast óðum og spennan er í hámarki
íslandsförin verður unaðsleg og vá hvað ég hlakka til að hitta alla vinina sem vonandi hafa ekki gleymt mér þó ég hafi verið týnd í bókunum
Sumarið verður endað á frakklandsför með mínum yndislegu foreldrum
Ég ætla að kynnast Århus upp á nýtt í sumar
Á hverjum degi í sumar ætla ég að gera eitthvað sem ég hef ekki gert áður
Æji hvað það er gaman að vera orðin ég sjálf aftur!
Það var svo gott að vakna í morgun, opna augun og að það fyrsta sem ég gerði var að brosa:)
Það er svo gaman að sjá alla vini sína svona glaða og káta og losnaða við baugana undir augunum
Ég hef alltaf átt erfitt með að hafa trú á sjálfri mér en í dag líður mér eins og ég geti allt!!
Ohh það er einfaldlega bara svo gott að vera til!!

6 Ummæli:
Þann 13 júní, 2008 15:57 ,
Edda sagði...
ohh gaman að fá blogg og vita að þú ert lifandi! til hamingju að vera búin elsku besta sæta! við emilía hlökkum óendanlega til að fá þig í sumar og vonandi flytjum við bara til þín sem fyrst:)
Þann 13 júní, 2008 16:33 ,
Tóta sagði...
Vááá hvað ég vona það líka:) Ég skal sko passa hana hvenær sem er! Hlakka til að sjá ykkur
Þann 15 júní, 2008 13:57 ,
Hulda hefur talað... sagði...
Til hamingju með að vera búin með þetta! Hlakka til að sjá þig hér í Köben. Koss og knús
Þann 19 júní, 2008 14:29 ,
Nafnlaus sagði...
Hæ, var rétt í þessu að finna síðuna þína!!! vissi ekki af henni, en til hamingju með að vera búin með prófin!!! Veit sko alveg hvernig þér líður! En hvenær kemuru á klakann? Langar ekkert smá til að sjá framan í þig, ég verð í borginni í sumar svo endilega láttu vita þegar þú átt leið um ;)
Knús & kossar
Hildur
Þann 21 júní, 2008 12:38 ,
Nafnlaus sagði...
Oh ég komst bara í gott skap við að lesa þessa færslu þína! Hlakka svo mikið til að hitta þig Þórný mín!
Þann 27 júní, 2008 20:08 ,
Nafnlaus sagði...
Yndislegt að lesa þetta besta, njóttu þess að vera til og hafðu það sem allra allra best. Vonandi náum við að hittast smá í sumar...*Knús og kossar* frá mér og bumbulínu
Eyrún
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim